Herði Magnússyni, íþróttafréttamanni hjá Stöð 2, var sagt upp í dag. Stöð 2 er í eigu fjarskiptafélagsins Sýnar. Fyrst var greint frá þessu á vef DV en Hörður staðfestir þetta síðan á Facebook .

„Mitt líf hefur verið uppfullt oft á tíðum af óvæntum beygjum. Ein slík hrikti undir mínum stoðum í morgun. Á 3 mínútna fundi var mér fyrirvaralaust sagt upp störfum eftir tæplega 20 ár," skrifar Hörður á Facebook síðu sína. "Hef reynt að vinna af heilindum og samviskusemi alla tíð. Vænst þykir mér að hafa kynnst mörgu frábæru fólki í gegnum tíðina. Ég hef verið heill þrátt fyrir atvinnutilboð annars staðar frá. Pepsi Mörkin voru ekki bara vinna. Þau standa mér næst. Í 9 ár án þess að missa úr þátt þá er það mest sem ég er stoltur af. Lýsingar á vettvangi í Moskvu Wembley , og Munchen eru eftirminnilegar sem og HM 2006. Ég kveð með söknuði. En það skyldi enginn afskrifa mig. Góðar stundir."

Fyrir rétt rúmum tveimur mánuðum var 13 manns sagt upp hjá Sýn, þeirra á meðal var Hjörvar Hafliðason, sem hafði verið yfirmaður íþróttadeildar Sýnar.