Heildarútflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2015 var 101,2 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 81,8 milljarðar, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands . Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 19,5 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi, en til samanburðar var hann jákvæður um 15,6 milljarða á sama tíma á síðasta ári.

Útflutt samgöngu- og flutningaþjónusta nam 36,1 milljarði og var stærsti liðurinn í útfluttri þjónustu á ársfjórðungnum. Innflutt samgöngu- og flutningaþjónusta nam 13,3 milljörðum. Afgangur nam því 22,8 milljörðum.

Innflutt ferðaþjónusta nam 24,7 milljörðum og var stærsti liðurinn í innfluttri þjónustu á ársfjórðungnum. Útflutt ferðaþjónusta var 31,3 milljarðar og því nam afgangur hennar 6,6 milljörðum. Afgangur á sama ársfjórðungi árið 2014 nam 2,4 milljörðum á gengi hvors árs.

Önnur innflutt viðskiptaþjónusta nam 21,8 milljörðum og útflutningur hennar 8,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. Líkt og fyrri ár var halli mestur af þessum þjónustulið eða 13,3 milljarðar.