Villa í gögnum Hagstofunnar varð til þess að þjónustuviðskipti við útlönd reyndust 12 milljarðar króna á 2. ársfjórðungi í stað 15,9 milljarða.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að kaup á ferðaþjónustu hækka um rúma 3,8 milljarða króna og því lækki afgangur á ferðaþjónustu úr 6,8 milljörðum króna eins og áður var talið í þrjá milljarða.

Hagstofan