Þóra Jónsdóttir hefur verið ráðin sem sviðsstjóri réttinda- og lögfræðisviðs Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga.

Þóra lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008 og öðlaðist lögmannsréttindi árið 2010. Þóra hefur undanfarin ár starfað sem lögmaður hjá Juris lögmannsstofu en áður starfaði hún á lögfræðisviði Sparisjóðabanka Íslands hf. (Icebank hf.) og síðar hjá skilanefnd og slitastjórn bankans.

Þóra er gift Halldóri J. Sveinssyni og eiga þau þrjár dætur.