Eiginmaður Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, stefnir á að bjóða sig fram til þings. En ekki í Danmörku, heldur í Bretlandi. Eiginmaðurinn, Stephen Kinnock, er breskur að uppruna og ætlar að bjóða sig fram í bænum Aberavon í Wales.

„Þetta er óvenjulegt,“ segir Helle Thorning-Schmidt. „Ég ítreka að þetta er óvenjulegt. Við höfum alltaf lifað óvenjulegu lífi,“ sagði Thorning-Schmidt á blaðamannafundi í forsætisráðuneytinu.