Hjá Samherja hefur í einu og öllu verið farið að lögum hvort sem það varðar gjaldeyrisviðskipti eða önnur málefni.

Þetta segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í tilkynningu frá félaginu.

Sem kunnugt er gerðu embættismenn Seðlabankans og embættis sérstaks saksóknara húsleit á fjórum starfstöðvum félagsins í dag. Grunur leikur á að fyrirtækið hafi gerst brotlegt við lög um gjaldeyrisviðskipti.

„Þessar aðgerðir Seðlabankans í dag eru tilefnislausar og hljóta að vera byggðar á röngum upplýsingum eða öðrum ástæðum sem okkur er ekki kunnugt um hverjar eru“  segir Þorsteinn Már í tilkynningunni. Þá kemur fram að forsvarsmenn félagsins hafa ekki fengið neinar skýringar frá Seðlabankanum á þessum aðgerðum.

„Samherji hefur lagt sig  fram um að uppfylla allar kröfur Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti. Ítarlega hefur verið farið yfir alla verkferla með starfsmönnum bankans. Á síðasta ári heimsóttu þeir meðal annars höfuðstöðvar Samherja á Akureyri þar sem lögð voru fyrir þá öll þau gögn sem óskað var eftir. Engar athugasemdir bárust í kjölfar þessara samskipta,“ segir í tilkynningunni.

„Samherji hf. er alþjóðlegt sölufyrirtæki með höfuðstöðvar á Akureyri. Fyrirtækið selur ekki einungis eigin afurðir heldur einnig afurðir fjölmargra erlendra fyrirtækja.  Sú starfsemi er margþætt og er orðin flóknari með tilkomu gjaldeyrishaftanna. Svo virðist sem Seðlabanki Íslands hafi átt í erfiðleikum með að átta sig á þessum hluta starfsemi Samherja hf. Kann það að hluta til að skýra þessar sérkennilegu aðgerðir nú.“

Þá segir í tilkynningunni að talsmaður Seðlabankans hafi upplýst sérstaklega í fjölmiðlum í dag að aðgerðir bankans gegn Samherja byggist á ábendingu starfsmanna Kastljóss RÚV. Hins vegar sé ekki auðvelt fyrir Samherja að leiðrétta rangfærslur sem ekki liggja fyrir hverjar eru.

Þó kemur fram í tilkynningunni að Samherja sé kunnugt um að Kastljós hafi á undaförnum vikum talið sig vinna að rannsókn á útflutningi Samherja á karfa til Þýskalands.

„Samherji selur mikið magn afurða sinna í gegnum sölufyrirtækin sín, Ice Fresh og Seagold. Verðlagning í þeim viðskiptum er í alla staði rétt og eðlileg og engum gjaldeyri haldið eftir sem skila ber.  Karfaviðskiptin sem sjónvarpsþátturinn og Seðlabankinn virðast telja tortryggileg nema um það bil 0,1% af veltu Samherja,“ segir í tilkynningunni.

„Þau viðskipti svo og öll önnur viðskipti Samherja við dótturfélög sín eru fullkomlega lögleg og í sama farvegi og þau voru löngu fyrir gjaldeyrishöftin og Seðlabankinn hefur kynnt sér. Eftir þessum reglum hefur verið farið í hvívetna.“

Þá segir Þorstinn Már að svo harkalegar og ómálefnalegar aðgerðir af hálfu Seðlabanka Íslands hljóti að vera einsdæmi og að hann lýsi fullri ábyrgð á hendur þeim sem að þeim standa.

„Ég skora á Seðlabankann að leggja fram rökstuðning sinn fyrir húsleitinni til að við getum lagt okkar að mörkum til að upplýsa Seðlabankann um þá þætti sem hann vill fá skýringar á og um leið freistað þess að takmarka tjón okkar af þessari harkalegu aðgerð,“ segir Þorsteinn Már.