Stjórn Actavis telur að tilboð Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssona, endurspegli ekki raunverulegt virði félagsins og framtíðarmöguleika þess. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Stjórn félagins er opin fyrir viðræðum við Novator og ef nýtt tilboð verður birt hluthöfum mun stjórnin taka það til skoðunar og birta álit sitt á því.

Tilboðið, sem birt var hluthöfum 1. júní síðastliðin, var lagt fram í evrum og hljóðar upp á 0,98 evrur á hlut í reiðufé og boðið öllum hluthöfum í A flokki.

Í samræmi við 41. grein yfirtökulaga frá árinu 2003 hefur jafnframt verið horft til fleiri þátta en þess verðs sem boðið hefur verið fyrir hluti í félaginu, s.s. fjármögnunar tilboðs, framtíðaráætlana og viðhorfs til stjórnenda, sem tilboðsgjafi gerir formlega grein fyrir í tilboði sínu. Þau atriði höfðu ekki áhrif á mat stjórnarinnar.

Þeir stjórnarmenn sem lögðu mat á tilboðið og skiluðu sameiginlegu áliti eru Sindri Sindrason, Magnús Þorsteinsson og Baldur Guðnason.