Skipulagsbreytingar verða hjá Kviku og GAMMA Capital Management eftir kaup bankans á síðarnefnda félaginu. Yfirtakan var samþykkt af Samkeppniseftirlitinu fyrir skemmstu.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá Kviku miða breytingarnar að því marki bæta þjónustu við viðskiptavini, auka vöruframboð og ná fram samlegð í rekstri. Sjóðir og starfsmenn munu færast milli félaganna í samræmi við reglur þeirra og gildandi lög.

Í eignastýringu bankans verða einkabankaþjónusta, sérhæfð eignastýring, viðskiptaþróun, þjónusta vegna sjóða samstarfsaðila og framtaksfjárfestingar. Hjá Júpíter verður rekstur sjóða sem fjárfesta mun í aðallega í skráðum hluta- og skuldabréfum auk óskráðra skuldaskjala. GAMMA mun á móti aðallega reka sjóði sem fjárfesta í fasteignum og lóðum en að auki verður áhersla lög á að halda áfram að þróa og kynna sérhæfðari fjárfestingasjóði.

Framkvæmdastjórar verða áfram þeir sömu. Hannes Frímann Hrólfsson verður yfir eignastýringarsviði Kviku, Valdimar Ármann framkvæmdastjóri GAMMA og Ragnar Páll Dyer hjá Júpíter.

Þrír starfsmenn GAMMA flytjast til eignastýringar Kviku. Jónmundur Guðmarsson tekur við nýju starfi innan eignastýringar sem forstöðumaður sölu og viðskiptatengsla en auk hans færast Sigurður Kr. Sigurðsson og Haukur Þór Hauksson til einkabankaþjónustu Kviku. Þeir Agnar Tómas Möller, Guðmundur Björnsson og Sverrir Bergsteinsson, auk sjóða sem þeir stýra, munu færast frá GAMMA til Júpíter.

Þá mun Ásgeir Baldurs, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga á eignastýringarsviði Kviku, flytjast til GAMMA og verða staðgengill framkvæmdastjóra. Stefnt er að því að Jón Þór Gunnarsson, Sveinn Hreinsson og Daníel Þór Magnússon flytjist  einnig yfir til GAMMA. Starfsemi dótturfélaga GAMMA og Kviku í London verður sameinuð undir stjórn Gunnars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Kviku Securities.

„Kaup Kviku á GAMMA efla verulega eigna- og sjóðastýringu Kviku og gefa bankanum tækifæri til þess að auka sérhæfingu með það að markmiði að ná betri árangri fyrir viðskiptavini. Kaupin hafa jafnframt jákvæð áhrif á vænta arðsemi bankans,“ er haft eftir Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, í tilkynningunni.