Eigendur Milestone Import Export Ltd. og Milestone ehf. hafa gert samkomulag um tilfærslu hluta Íslandsbanka hf. Þannig hefur Milestone ehf. eignast hluti í Íslandsbanka samtals að nafnverði kr. 82.800.000. Milestone ehf. hefur einnig tekið yfir framvirkan samning Karls Wernerssonar við Íslandsbanka hf. um kaup á hlutum í Íslandsbanka hf. að nafnvirði kr. 38.900.000.

Milestone Import Export Ltd. og Milestone ehf. eru í eigu Ingunnar Wernersdóttur, Karls Wernerssonar og Steingríms Wernerssonar. Framangreindar tilfærslur hafa engin áhrif á atkvæðisrétt Milestone ehf. og fjárhagslega tengdra aðila í Íslandsbanka hf. Karl Wernersson er stjórnarmaður í Íslandsbanka hf.