Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hafa verið flutt inn samtals 27.566 tonn af timbri til landsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2010. Mest var flutt inn í maí, 5.853 tonn.

Er þetta nokkur aukning frá sama tíma á árinu 2009 þegar flutt voru inn 21.480 tonn af timbri fram í septemberlok.

Það er samt langt í land að það nái innflutningnum á sama tímabili 2008 sem nam þá 37.258 tonnum og 62.779 tonnum frá janúar til og með september árið 2007.