Tinna Finnbogadóttir hefur verið ráðin til nýstofnaðs endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækis, BDO ehf. Tinna mun gegna forstöðu fyrirtækjaráðgjafar hjá BDO.

Áður starfaði Tinna á endurskoðunarsviði PricewaterhouseCoopers (PwC). Tinna lauk B.Sc. prófi í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 2006 og M.Sc. prófi í fjármálum og hagfræði frá sama skóla árið 2009.