Í nýrri könnun Capacent Gallup mældist traust til fjölmiðla 69%, til stjórnvalda 67% og til viðskiptalífsins 60%. Í sambærilegri könnun Capacent Gallup í fyrra reyndust flestir treysta ríkisstjórninni/stjórnvöldum betur en viðskiptalífinu og fjölmiðlum.

Þetta kom fram í máli Dr. Guðbjargar Andreu Jónsdóttur, rannsóknarstjóra Capacent Gallup á morgunverðafundinum Traust á umbrotatímum sem nú stendur yfir.

Í könnun Capacent Gallup kemur einnig fram að 61% íslenskra áhrifavalda telja að umfjöllun um íslenskt efnahagslíf í erlendum fjölmiðlum undanfarin misseri hafi skaðað ímynd Íslands.

Þá telja aðspurðir einnig að minnst traust sé borið til íslenskra fyrirtækja í Danmörku og Bandaríkjunum en að þau njóti mests trausts í Frakklandi og Þýskalandi.

Nánar verður fjallað um fundinn í Viðskiptablaðinu á morgun.