Tryggingamiðstöðin (TM) er þessa stundina að flytja höfuðstöðvar frá Aðalstræti yfir í Síðumúla 24. TM hefur verið til húsa á sama stað í rúma hálfa öld óslitið eða frá því að félagið hóf starfsemi sína fyrir 52 árum.

Meðfylgjandi mynd var tekin í morgun þegar TM merkið var tekið niður í Aðalstrætinu. TM mun opna á nýjan leik á mánudaginn í nýju húsnæði í Síðumúla 24.