Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 97.757 erlendir ferðamenn frá landinu í júlí síðastliðnum eða um 14 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 17,1% milli ára. Ferðamenn hafa aldrei verið fleiri í júlímánuði eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð árið 2002.

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega aukningu frá Norður-Ameríku eða um 59%. Bretum fjölgar um 13,5%, Norðurlandabúum um 11,5% og Mið- og Suður-Evrópubúum um 6,2%. Aukningin frá löndum sem eru flokkuð undir annað er ennfremur umtalsverð eða 18,4% milli ára.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar langfjölmennastir

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júlí frá Bandaríkjunum (13,9%) og Þýskalandi (12,8%). Ferðamenn frá Danmörku (8,2%), Frakklandi (8,1%), Bretlandi (7,2%), Noregi (5,7%) og Svíþjóð (5,0%) fylgdu þar á eftir en samanlagt voru framangreindar sjö þjóðir 61% ferðamanna í júlímánuði.