Unnur María Birgisdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri 365 og tekur við starfinu af Svani Valgeirssyni sem gegnt hefur bæði stöðu auglýsinga- og mannauðsstjóra fyrirtækisins. Svanur mun áfram starfa sem auglýsingastjóri fyrirtækisins.

Unnur María lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands, BSc gráðu í Heilbrigðisvísindum frá Kaupmannahöfn og MSc í þjálfunarsálfræði frá London 2014.

Unnur María hefur unnið við sálfræðitengdar rannsóknir í Kaupmannahöfnarháskóla og starfaði áður í mannauðsmálum hjá Meniga. Hún er gift Degi Sigurðssyni og saman eiga þau tvö börn.