Upplýsingakerfi sem auðvelda á siglingar og fiskveiðar við Íslandsstrendur bar sigur úr býtum í samkeppni um Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands árið 2014. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Háskólanum en verðlaunin voru afhent í Hátíðasal skólans fyrr í dag. Tvö önnur verkefni, sem snúa að táknmálskennslu á vefnum annars vegar og notkun á útrunnum blóðflögum til stofnfrumuræktunar hins vegar, fengu einnig verðlaun.

Þetta var í sextánda sinn sem Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands voru afhent en markmiðið með veitingu þeirra er að laða fram hagnýt verkefni sem starfsmenn og nemendur vinna að og stuðla að nýsköpun innan skólans.

Þrettán tillögur bárust í keppnina og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Val á verðlaunaverkefnum var í höndum sérstakrar dómnefndar en hún horfði m.a. til þess hversu fljótt væri hægt að hagnýta tillöguna, hvort hún styddi við stefnu og starfsemi háskólans, hversu frumleg hún væri og hvaða ávinning hún hefði fyrir samfélagið.

Verkefnið „Marsýn – SeaState upplýsingakerfi fyrir sæfarendur“ hlaut fyrstu verðlaun sem nema einni milljón króna. Að verkefninu standa Guðrún Marteinsdóttir, prófessor í fiskifræði og fiskavistfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, og Kai Logemann, sérfræðingur við Líf- og umhverfisvísindastofnun skólans.