Í lok ársins 2018 voru um 44.300 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi, eða um 12,4% af mannfjöldanum. Mikil fjölgun hefur verið á erlendum ríkisborgurum með búsetu hér á síðustu árum, en í lok ársins 2012 nam hlutfall þeirra af mannfjöldanum 6,6%. Útlendingum búsettum hér á landi hefur þannig fjölgað mun meira en innfæddum á síðustu árum. Sé litið á fólksfjölgun frá árslokum 2012 fram til ársloka 2018 hefur íslenskum ríkisborgurum fjölgað um 4,1% en erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 106%. Íbúum alls hefur fjölgað um 10,9% á þessum tíma og það gefur augaleið að meginþorri fjölgunarinnar er vegna erlendra ríkisborgara. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans .

Vandasamt er að spá fyrir um fjölgun erlendra ríkisborgara. Að mati Hagstofunnar flytur annar hver erlendur ríkisborgari sem hingað kemur af landi brott innan tveggja ára. Þar að auki fær hluti erlendra ríkisborgara sem hingað kemur íslenskt ríkisfang og teljast þá ekki lengur vera erlendir ríkisborgarar.

Hlutfall innflytjenda á vinnumarkaði 19%

Fjölgun útlendinga á íslenskum vinnumarkaði er þó nokkuð meiri en gildir um íbúafjöldann. Á þriðja ársfjórðungi síðasta árs voru um 210 þús. starfandi á íslenskum vinnumarkaði, þar af voru um 170 þús. með íslenskan bakgrunn og um 40 þús. innflytjendur. Hlutfall innflytjenda á vinnumarkaði hér á landi var því um 19%, en var rúmlega 9% á árinu 2010.

Þessi mikla fjölgun erlends starfsfólks, og tiltölulega minni vissa um ýmsa þætti hennar en gildir um Íslendinga, hefur valdið töluverðri óvissu um þróun ýmissa hagstærða.

Einn þessara þátta snýr að þátttöku á vinnumarkaði. Hagstofan fylgist með þróun á vinnumarkaði með mánaðarlegri vinnumarkaðskönnun sinni, sem er úrtakskönnun. Það er nokkuð mikil vissa fyrir því að erfiðara er að ná til erlendra starfsmanna en þeirra innlendu í úrtakskönnun og þegar þeir erlendu eru orðnir um 20% af vinnumarkaðnum (stærra hlutfall í sumum greinum) gefur augaleið að óvissa varðandi niðurstöður er orðin mun meiri en þegar hlutfall útlendinga var lægra. Vinnumarkaðskönnunin gefur upplýsingar um marga mikilvæga þætti, t.d. um þátttöku á vinnumarkaði og fjölda vinnustunda. Heildarfjöldi vinnustunda er stærð sem skiptir verulegu máli þegar meta á framleiðni vinnuaflsins og þróun á framleiðni. Sú stærð skiptir svo aftur máli þegar meta þarf svigrúm til launahækkana svo eitthvað sé nefnt í þessu sambandi.

Innflytjendur líklegri til að kjósa að búa í minna húsnæði

Nýlega komu fram niðurstöður átakshóps um aukið framboð á íbúðum. Þar er reynt að áætla þörf fyrir nýjar íbúðir á næstu árum á grundvelli nýrrar skýrslu Íbúðalánasjóðs um íbúðaþörf. Einn af þeim þáttum sem skiptir máli við mat á íbúðaþörf er fjöldi innflytjenda, fjölgun þeirra og spá um framvindu þeirra mála. Í skýrslu Íbúðalánasjóðs kemur m.a. fram að innflytjendur séu að meðaltali yngri en aðrir landsmenn og að þeir séu líklegri en aðrir landsmenn til þess að búa einir í heimili og kjósi að jafnaði að búa í minna húsnæði. Í þessu sambandi kemur upp sú spurning að hve miklu leyti eigi að hafa hliðsjón af húsnæðisþörf þess fjölda útlendinga sem nú býr hér á landi og e.t.v. taka tillit til þeirra sérþarfa sem þeir kunna að hafa. Íbúðalánasjóður bregður á það ráð að kynna tvö afbrigði af sviðsmynd fyrir greiningu á íbúðaþörf miðað við mismunandi mat á flutningum innflytjenda til og frá landinu fram til 2028.

Þessi tvö dæmi um annarsvegar þátttöku og hegðun á vinnumarkaði og mat á íbúðaþörf sýnir hve miklu máli skiptir að hafa sem öruggastar upplýsingar um þennan nýja hóp sem skiptir æ meira máli í samfélagi okkar. Fram til þessa hefur verið talið að áhugi erlendra ríkisborgara á dvöl og atvinnu hér á landi tengist hagsveiflunni mikið; þeir komi í uppgangi en flytji burt þegar verr árar. Það er ekki víst að staðan verði alltaf þannig. Það er t.d. líklegt að launa- og starfskjör séu tiltölulega góð hér á landi fyrir þau störf sem innflytjendur vinna helst við. Hér er fyrst og fremst um að ræða ófaglært vinnuafl sem virðist ekki njóta síðri kjara hér en í nálægum löndum.