Ekkert félag kemur í stað Actavis Group sem fjarlægt var úr Úrvalsvísitölunni OMX15 í dag á þessu tímabili, sem nær frá 1. júlí til 31. desember, og eru nú fyrirtækin í Úrvalsvístölunni 13, samkvæmt upplýsingum frá greiningardeild Glitnis.

Actavis Group var fjarlægt úr Úrvalsvísitölunni í kjölfar þess að fjárfestingarfélagið Novator var komið með yfir 90% af útistandi hlutafé í félaginu.