Velta á fasteignamarkaði dróst verulega saman milli vikna í vikunni sem leið samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni rétt tæpir 1,2 milljarðar króna en var í síðustu viku rúmir 1,4 milljarðar. Veltan dregst því saman um 16% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 12% milli vikna.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 36 í vikunni sem leið en 50 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Rétt er að taka fram að 71 samningi hefur verið þinglýst að meðaltali á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 33,2 milljónir króna sem er nær meðalveltu en verið hefur síðustu vikur en meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,3 milljónir.

Meðalvelta á viku frá áramótum er tæpir 2,3 milljarðar.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 80% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.