Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 90 í vikunni sem leið en 79 samningum var þinglýst í vikunni þar áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Þá eykst nokkuð meðalupphæð á hvern samning milli vikna en velta á fasteignamarkaði jókst um 63% milli vikna í vikunni sem leið.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Í vikunni sem leið var velta á fasteignmarkaði rúmlega 3,7 milljarðar króna en var í fyrri viku rúmlega 2,3 milljarðar. Meðalvelta á viku frá áramótum er tæplega 2,4 milljarðar en þá hefur 72 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 60% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Meðalvelta á hvern samning í vikunni var 41,8 milljónir króna sem er nokkuð yfir meðallagi frá áramótum en í fyrri viku var meðalvelta á hvern samning  29,2milljónir. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 33 milljónir.