Hagnaður varð af rekstri ICEQ verðbréfasjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 1.622 milljónir króna rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar fylgir ekki samanburðartölur eða ársreikningurinn sem slíkur.

Eigið fé sjóðsins nam í lok júní 6.533 milljónum króna.

Eiginfjárhlutfall var 56,5% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en
8,0%.

Rekstrarfélag ICEQ er Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. sem er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.