Vélstjórar á fiskiskipum samþykktu ótímabunið verkfall með 90% atkvæða í kosningu í dag. Þetta kemur fram í frétt á vef félags vélstjóra og málmtæknimanna.

Á kjörskrá voru 472 félagsmenn VM. Af þeim kusu 339, eða 71,8%. Já sögðu 308, eða 90,8%. Nei sögðu 26, eða 7,7% og 5, eða 1,5%, skiluðu auðu, segir í tilkynningunni.

Á kjörskrá voru 472 félagsmenn samtakanna. Verkfallið hefst því 10. nóvember 2016 kl. 23:00, segir í fréttinni.