Verkfallsaðgerðir flugstétta höfðu áhrif á rekstur Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi þessa árs.

Fram kemur í tilkynningu að hagnaður fyrirtækisins eftir skatta nam 22,4 milljónum dollara samanborið við 18,5 milljónir dollara árið áður. EBITDA nam 45,2 milljónum dollara samanborið við 42,9 milljónir dollara árið áður. Heildartekjur fyrirtækisins jukust um 12%.

Verkfallsaðgerðir flugstétta höfðu veruleg neikvæð áhrif á uppgjör annars ársfjórðungs sem námu 3,5 milljónum dollara.

Eiginfjárhlutfall Icelandair Group var 34% í lok júní. Handbært fé frá rekstri nam 83,6 milljónum dollara samanborið við 106,4 milljónir dollara árið áður.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir vinnudeilur við flugstéttir hafa haft áhrif á rekstur annars ársfjórðungs. Vegna kjaradeilna þurfti að fella niður 157 flug og breyta bókunum yfir 22 þúsund farþega. Tekjutap og beinn kostnaður Icelandair Group vegna þessa nam um 3,5 milljónum dollara. Hann segir að þrátt fyrir að afkoma af millilandastarfsemi hafi verið undir væntingum vegna verkfallsaðgerða þá gekk önnur starfsemi samstæðunnar vel. Mikil fjölgun ferðamanna til Íslands skilaði sér í góðri afkomu félaga þeirra í ferðatengdri þjónustu. Afkoma í fraktstarfsemi félagsins var góð og jókst á milli ára. Þá hafði bakfærsla á niðurfærslu krafna í leiguflugsstarfsemi félagsins jákvæð áhrif á afkomuna.

Björgólfur segir fjárhagslega stöðu félagsins vera sterka. Bókunarstaða í millilandaflugi fyrir komandi mánuði hefur batnað eftir að vinnudeilum lauk og almennar horfur í rekstri samstæðunnar eru góðar. Miðað við núverandi rekstrarforsendur er gert ráð fyrir að EBITDA ársins muni verða á bilinu 145-150 milljónir dollara sem er hækkun frá því sem tilkynnt var um í júní. Hann segir betri heimtur krafna í leiguflugstarfsemi vega þungt í hækkuninni.