Skuldabréfavísitala Gamma, GBI, hækkaði í dag um 0,8% í 9 milljarða króna viðskiptum.

Þetta kemur fram í daglegu yfirliti GAM Management (GAMMA).

Sem fyrr segir nam veltan með skuldabréf um 9 milljörðum króna. Þar af nam velta með verðtryggð skuldabréf um 3,6 milljörðum króna en velta með óverðtryggð skuldabréf um 4,7 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitalan hefur þannig hækkað um 2,4% á einni viku og um 4,5% á einum mánuði.

Verðtryggði hluti skuldabréfavísitölunnar, GAMMAi, hækkaði um 1,2% í dag. Þá hefur GAMMAi hækkað um 3% á einni viku og um 4,1% á einum mánuði.

Óverðtryggði hluti vísitölunnar, GAMMAxi, lækkaði hins vegar um 0,2% í dag en hefur þó hækkað um 0,8% á einni viku og um 3,4% á einum mánuði.