Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG fékk afgerandi kosningu, að sögn flokksins, í fyrsta sæti í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi.

Samkvæmt tilkynningu frá flokknum var kjörsókn tæplega 63% en alls gaf 21 félagi kost á sér í forvalinu.

Vinstri grænir hafa ekki birt nákvæmari tölur úr forvalinu og því hefur ekki komið fram hversu mörgu atkvæði hver frambjóðandi fékk í hvert sæti.

Kosið var um átta sæti og frambjóðendur raðast þannig:

  1. Steingrímur J. Sigfússon
  2. Þuríður Backman
  3. Björn Valur Gíslason
  4. Bjarkey Gunnarsdóttir
  5. Þorsteinn Bergsson
  6. Hlynur Hallsson
  7. Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir
  8. Jóhanna Gísladóttir

Vegna reglna um kynjajafnrétti á listum Vinstri grænna færist Dýrleif Skjóldal upp fyrir Hlyn Hallsson.