Nova mældist fimmta árið í röð með ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu á Íslandi samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem voru kynntar í dag. Nova var með einkunnina 72,6 en meðaleinkunn farsímageirans var 62,7.

Íslenska ánægjuvogin er könnun sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup standa sameiginlega að með það að markmiði að útvega fyrirtækjum samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina.

„Við höfum lagt metnað okkar í að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og því er þessi viðurkenning okkur hjá Nova einkar ánægjuleg. Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir frábæra viðurkenningu, hún er okkur hvatning til að gera stærsta skemmtistað í heimi enn skemmtilegri,“ segir Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, í tilkynningu.