Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,16% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.749,13 stigum. Mest var hæækunin á gengi bréfa VÍS, eða um 3,31%, en velta með bréf félagsins var einnig mjög mikil, eða 1,4 milljarðar króna. Þá hækkaði gengi bréfa Eimskips um 2,46% og Icelandair um 2,26%.

Gengi bréfa Símans lækkaði um 0,65% og Reita um 0,11%. Þá lækkaði gengi bréfa Össurar um ein 5,26%, en í afar litlum viðskiptum.

Velta á hlutabréfamarkaði var með meira móti og nam um 4.580,8 milljónum króna, en mikil velta var í viðskiptum með öll félög í Úrvalsvísitölunni að Símanum undanskildum.