Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember 2010 er 100,8 stig sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Vísitalan gildir í desember 2010. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 0,9%.