Vísitala framleiðsluverðs í mars 2008 var 137,2 stig og hækkaði um 9,2% frá febrúar 2008.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 157,0 stig, sem er hækkun um 12,6% (vísitöluáhrif 4,4%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 168,1 stig, hækkaði um 20,8% (4,6%).

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,0% frá febrúar (0,2%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,1% (0,0%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,9% (-0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 15,1% (9,4%).

Frá mars 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5% og verðvísitala sjávarafurða um 24,8%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 10,3% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 5,6%.