Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2007 er 121,3 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 0,4% og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 3,6%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,1% en vísitala fyrir annan iðnað var óbreytt frá mars.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,1% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 0,9%.

Í tilkynningu Hagstofunnar kemur fram að frá apríl 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 3,9%; sjávarafurðir hafa hækkað í verði um 6,7%, afurðir stóriðju um 1,2% og matvæli um 4,9%.