„Svo virðist sem ýmsir hafi viljað slá Íbúðalánasjóð til riddara og telja mikilvægi hans hafa sannað sig á síðustu mánuðum. Þar er um mikinn misskilning að ræða enda eru breytingar á fyrirkomulagi Íbúðalánasjóðs helsta orsök þeirrar stöðu sem nú er komin upp á húsnæðislánamarkaði.“

Þetta kemur fram í Skoðun Viðskiptaráðs sem birt var í dag.

Þá segir að starfsemi Íbúðarlánasjóðs hafi grafið undan áhrifamætti peningastefnunnar, aukið ójafnvægi í hagkerfi að tilefnislausu og ógnað fjármálastöðugleika. „Það er því nauðsynlegt að umbreyta Íbúðalánasjóði hið fyrsta,“ segir í skoðun Viðskiptaráðs.

„Ekki er nauðsynlegt að hverfa frá félagslegum markmiðum Íbúðalánasjóðs, enda hefur reynsla erlendis frá sýnt að hægt er að tryggja fjárhagslega verr settum einstaklingum aðgang að húsnæði með skilvirkari hætti en nú tíðkast.  Um leið er mikilvægt að leiðrétta þá villandi umræðu sem hefur átt sér stað á undanförnum misserum um stöðu á húsnæðislánamarkaði.“

Barátta Seðlabankans fyrir stöðugu verðlagi ekki gengið sem skildi

„Barátta Seðlabankans fyrir stöðugu verðlagi hefur ekki gengið sem skildi á undanförnum árum og verðbólga hefur því bæði verið há og viðvarandi. Þetta má að stærstum hluta rekja til mikillar eftirspurnar.“

Þá segir að þeir vextir sem skipti einstaklinga mestu eru húsnæðislánavextir og segir Viðskiptaráð að hækkun stýrivaxta miði m.a. að hækkun þeirra.

„Með þessum hætti er peningastefnu Seðlabankans ætlað að sporna gegn þenslu í hagkerfinu. Það skýtur skökku við að hið opinbera skuli hafa unnið gegn nauðsynlegri hækkun húsnæðisvaxta með því að niðurgreiða almenn íbúðalán í gegnum Íbúðalánasjóð,“ segir Viðskiptaráð.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér.