Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í dag eftir samfelda átta daga lækkun. Hækkunin í dag er sú mesta það sem af er desember. Hon Hai Precision Industry, framleiðendi iPots og iPhones fyrir Apple, og Advantest hækkuðu í kjölfar þess að Research in Motion, framleiðandi BlackBerrys, og Qualcomm hækkuðu afkomuspár sínar.

China Life Insurance leiddi hækkun tryggingafélaga.

TOPIX vísitalan í Tókýó hækkaði um 0,8% og NIKKEI 225 hækkaði um 1,5%. HANG SENG í Hong Kong hækkaði um 2,3% og CSI 300 í Kína hækkaði um 1,3%.