Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir mars 2008 nam útflutningur tæpum 31,2 milljörðum króna og innflutningur 36,4 milljörðum króna.

Vöruskiptin í mars voru því óhagstæð um 5,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum, en þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vísbendingar eru um mikla aukningu á útflutningi á áli í marstölum miðað við janúar og febrúar 2008.