Í júlí 2018 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 50,5 milljarða króna og inn fyrir 63,5 milljarða króna fob (67,8 milljarða króna cif). Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 13 milljarða króna. Í júlí 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 20,7 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í júlí 2018 var því 7,7 milljörðum króna minni en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 15,1 milljarði króna samanborið við 20,1 milljarð króna halla í júlí 2017.

Á tímabilinu janúar til júlí 2018 voru fluttar út vörur fyrir 337,5 milljarða króna en inn fyrir 433,9 milljarða (463,0 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 96,4 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 105,8 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn á tímabilinu janúar til júlí er því 9,3 milljörðum króna minni en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 81,8 milljörðum króna, samanborið við 94,1 milljarð króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 51,3 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 17,9% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,2% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 39,5% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 26,4% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í nær öllum undirliðum sjávarafurða en aukninguna á milli ára má meðal annars rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.

Innflutningur

Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 42 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 10,7% á gengi hvors árs. Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og fjárfestingu í flugvélum.