Flugfélagið Wow air stóð sig best af íslensku flugfélögunum í millilandaflugi og voru engar tafir á ferðum þess bæði til og frá landinu síðustu tvær vikurnar. Þetta eru niðurstöður útreikninga sem teknar voru saman á vefsíðunni Túristi.

Fram kemur í tilkynningu frá Wow air að rúmlega níu af hverjum tíu brottförum Icelandair, Iceland Express og WOW air stóðust áætlun á seinni hluta júnímánaðar. Í mínútum talið var seinkunin að jafnaði mjög stutt. Ferðasumarið fer því miklu betur af stað, þegar horft er til stundvísi á Keflavíkurflugvelli, en á síðasta ári. Í júní í fyrra voru t.a.m. aðeins 44,5 prósent brottfara á flugvellinum á tíma.

Komutímar WOW air stóðust oftar en hjá hinum tveimur félögunum og nýliðarnir eru því stundvísasta félagið í Keflavík á seinni hluti júnímánaðar.

Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.