Yfir 20 þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun þar sem skorað er á Alþingi að hafna frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans.

Auk þess er heitið á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að synja frumvarpinu staðfestingar, verði það samþykkt á Alþingi þannig að þjóðin fái að úrskurða um málið.

Undirskrifasöfnunin fer fram á vefnum kjosum.is en síðan var opnuð sl. föstudagskvöld.

Þetta er ekki fyrsta undirskrifasöfnunin sem fram fer gegn Icesave frumvarpi en sem kunnugt er afhenti InDefence hópurinn forseta Íslands undirskriftir rúmlega 56 þúsund manns í byrjun árs 2010. Nokkrum dögum síðar synjaði forsetinn þáverandi lögum um ábyrgð ríkissjóðs vegna Icesave.

Í þjóðaratkvæðagreiðslu í byrjun mars í fyrra hafnaði yfirgnæfandi meirihluti kjörbærra manna síðan sömu lögum.