ESA, eftirlitsstofnun EFTA, ætlar að rannsaka hvort yfirtaka Íbúðalánasjóðs á íbúðalánum smærri fjármálafyrirtækja feli í sér ríkisaðstoð sem fer í bága við reglur Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Tilkynning þess efnis barst íslenskum stjórnvöldum fyrir helgina.

Íbúðalánasjóður hefur tekið yfir lánasöfn til dæmis SPRON og Sparisjóðs Keflavíkur og greitt fyrir með íbúðabréfum útgefnum af sjóðnum. Samkvæmt forathugun ESA felur þetta í sér sértækan ríkisstuðning við fjármálafyrirtæki sem öðrum standi ekki til boða. Setur stofnunin fram efasemdir um verðmat á eignunum sem skipt er á, ávinning ríkisins og settar takmarkanir á umfangi og tímaramma.

Áður en ESA kemst að endanlegri niðurstöðu fá hlutaðeigandi aðilar eins og ríkisstjórnin tækifæri til að gera athugasemdir við þá niðurstöðu að aðgerðin feli í sér sértæka ríkisaðstoð. Mun umsagnarferlið taka um mánuð. Að því loknu gefur eftirlitsstofnunin út sitt endanlega álit.

Jóhanna Sigurðardóttir undirritaði reglulerðina

Samkvæmt reglugerð sem Jóhanna Sigurðardóttir undirritaði sem félagsmálaráðherra í nóvember 2008 er  Íbúðalánasjóði heimilt að kaupa skuldabréf fjármálafyrirtækja sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði hér á landi að því tilskildu að kaupin séu til þess fallin að tryggja öryggi lána á íbúðalánamarkaði og hagsmuni lántakenda. Heimildin á jafnt við um lán í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum. Ef skuldabréf sem sjóðurinn yfirtekur er í erlendri mynt verður skuldbinding lántakanda áfram í sömu mynt.

Hvorki Íbúðalánasjóður né einstaklingar geta haft frumkvæði að því að lán flytjist til sjóðsins heldur þurfa fjármálastofnanir að óska sjálfar eftir því að Íbúðalánasjóður yfirtaki íbúðaveðlán á þeirra vegum. Ef ekki næst samkomulag milli Íbúðalánasjóðs og fjármálafyrirtækis um samningsskilmála og kaupverð sem sjóðurinn telur fullnægjandi með hliðsjón af útlánahættu skal hann synja umsókn fjármálafyrirtækisins um yfirtöku.

Þegar Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið skuldabréfalán öðlast lántakendur sömu réttindi gagnvart sjóðnum og aðrir lántakendur hans og bera jafnframt sömu skyldur. Kjör og skilmálar skuldabréfalána gagnvart lántakendum sem Íbúðalánasjóður yfirtekur verða óbreytt frá því sem var fyrir yfirtöku sjóðsins á láninu eftir því sem við getur átt.