Félag Yrsu Sigurðardóttur rithöfundar, Yrsa Sigurðardóttir ehf., hagnaðist um 32,3 milljónir á árinu 2015. Hagnaður Yrsu eykst milli ára, en hagnaður ársins 2014 nam tæpum 22 milljónum. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins.

Eigið fé félagsins í lok árs 2015 nam 38,3 milljónum samanborið við 23 milljónir á sama tíma árið 2014.

Greiddur verður arður til hluthafa á árinu 2016 að fjárhæð 25 milljónir.

Félagið er að fullu í eigu Vilborgar Yrsu Siguðardóttur.