Arnaldur Jón Gunnarsson, lögmaður hjá Kaupþingi, er launahæstur lögmanna. Launatekjur hans á síðasta ári námu rúmlega 6 milljónum króna á mánuði.

Í öðru sæti listans er annar lögmaður Kaupþings, Þröstur Ríkharðsson. Hann var með 5,4 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Viðar Már Matthíasson, fyrrverandi hæstaréttardómari, með 5,4 milljónir á mánuði.

53 lögmenn eru með yfir 2 milljónir króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.

Tíu tekjuhæstu lögmennirnir:

  1. Arnaldur Jón Gunnarsson, hdl. Kaupþingi - 6 milljónir króna
  2. Þröstur Ríkharðsson, hrl. Kaupþingi - 5,4 milljónir
  3. Viðar Már Matthíasson, fv. hæstaréttardómari - 5,4 milljónir
  4. Árni Huldar Sveinbjörnsson, lögfr. KPMG Law - 4,1 milljón
  5. Egill Þorvarðarson, yfirlögfr. Air Atlanta - 3,8 milljónir
  6. Ársæll Hafsteinsson, hdl. AH Lögmenn, LBI - 3,6 milljónir
  7. Ástráður Haraldsson, dómari Héraðsd. Rvk - 3,5 milljónir
  8. Kristinn Hallgrímsson, hrl. Arta - 3,4 milljónir
  9. Halldór Halldórsson, dómstj. Héraðsd. Norðvest. - 3,3 milljónir
  10. Greta Baldursdóttir, fv. hæstaréttardómari - 3,1 milljón

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði