Góðgerðaruppboð FKA fór fram í Gallerí Fold til styrktar UN Women Íslandi á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA stóð fyrir uppboðinu undir nafninu „Fjárfestum í konum” þar sem ágóðinn rann óskiptur til verkefna UN Women á heimsvísu.

Kristjana Brynjólfsdóttir og Lilja Ósk Diðriksdóttir.
© epa (epa)

Kynnir kvöldsins, Svanlaug Jóhannsdóttir, hvatti öll viðstödd til að opna veskin með góðum húmor og uppboðshaldarinn Jóhann Hansen sá um sjálft uppboðið.

Christine Gísladóttir og Jóna Þorvaldsdóttir listljósmyndarar voru með verk í uppboðinu.
© Eva Rún Eiðsdóttir (Eva Rún Eiðsdóttir)

Tæplega 900 þúsund krónur söfnuðust fyrir UN Women á Íslandi.

Til vinstri Helga Björnsson hönnuður sem var með litaglaðan kjól og slæðu í geometrísku mynstri á uppboðinu.
© Eva Rún Eiðsdóttir (Eva Rún Eiðsdóttir)

„Það var hvetjandi að sjá svona margar konur koma saman til að styðja hverja aðra, hafa gaman en í senn hafa góð áhrif á samfélagið. Þessi viðburður hefði ekki orðið nema með rausnarlegum gjöfum frá Gallerí Fold, Arion banka, Coca Cola á Íslandi og öllu því frábæru listafólki sem gáfu verkin sín,“ sagði Kristjana Thors Brynjólfsdóttir frá Alþjóðanefnd FKA.

Valeria Bulatova, sem sinnir fjáröflunarverkefnum hjá UN Women á Íslandi, og Sara McMahon kynningarstýra UN Women á Íslandi.
© Eva Rún Eiðsdóttir (Eva Rún Eiðsdóttir)