Benedikt Ólason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrar hjá Niceair. Benedikt hefur yfir 20 ára reynslu í flugi, lengt af sem flugstjóri, þjálfunarflugstjóri og Airbus-flotastjóri hjá Air Atlanta. Greint er frá ráðningu hans í fréttatilkynningu.

„Við erum glöð með að fá Benedikt til liðs við hópinn, en hans bakgrunnur og fjölbreytt reynsla er mjög góð viðbót við sterkan hóp. Það er mjög mikilvægt fyrir ungt fyrirtæki að fá til sín svo mikla og farsæla reynslu úr alþjóðlegu starfsumhverfi,” er haft eftir Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra Niceair.

Í tilkynningunni segir að Niceair hafi verið starfrækt síðan í júní á þessu ári og fljúgi til Kaupmannahafnar og Spánar frá Akureyri. Fleiri áfangastaðir séu í bígerð fyrir 2023, en verkefni félagsins sé fyrst og fremst að auka aðgengi erlendra ferðamanna að Norður- og Austurlandi auk þess að þjónusta íbúa þeirra landshluta. Starfsemin hafi verið í takti við væntingar, en sætanýting frá upphafi sé 68% og félagið flutt um 25 þúsund farþega. Hlutfall erlendra ferðamanna í október hafi verið um 22% og farið stig vaxandi frá upphafi.

„Ég hlakka mikið til að taka þátt í uppbyggingu og eflingu starfsemi Niceair á starfsvæði þess á Norður- og Austurlandi. Fyrirtækið er ungt og mikil áskorun að taka þátt í mótun þess á fyrstu stigum,” er haft eftir Benedikt.

© Aðsend mynd (AÐSEND)