Björg Bjarnadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands (SGS), stærsta landsbandsins innan ASÍ, og mun hún hefja störf 1. október næstkomandi. Ráðningarferlið var í höndum Hagvangs en alls bárust þrettán umsóknir um stöðuna, að því er kemur fram í tilkynningu á vef SGS. Björg tekur við stöðunni af Flosa Eiríkssyni sem hefur gegnt stöðunni frá árinu 2018.

Björg starfaði sem skrifstofustjóri hjá einu af aðildarfélögum SGS í um 13 ár. Frá árinu 2018 hefur hún starfað við kennslu í Fjölbrautarskóla Vesturlands ásamt því að gegna stöðu forstöðumanns bókasafns og sjá um skjalavörslu fyrir fjölbrautarskólann. Hún hefur einnig starfað sem VIRK-ráðgjafi fyrir öll stéttarfélögin á Akranesi og var einn af fyrstu ráðgjöfum sjóðsins og tók þátt í þróun og uppbyggingu þjónustunnar frá upphafi.

Björg sat sem aðalmaður í stjórn Festu lífeyrissjóðs árin 2013-2015 og sem varamaður frá 2015-2019 auk þess sem hún sat í verðlagsnefnd búvara á árunum 2015-2017. Þá hefur Björg sinnt hinum ýmsu félags- og sjálfboðaliðastörfum, m.a. umsjón með vikulegu barnastarfi hjá Rauða krossinum.

Hún hefur lokið meistaranámi í upplýsingarfræði (MIS-gráða), ásamt því að vera með viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu, kennsluréttindi á meistarastigi og starfsréttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari. Björg er auk þess með BA-próf í íslensku og stúdentspróf af félagsfræðibraut.