Hjörvar Blær Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður útflutningsdeildar hjá Eimskip. Hjörvar hefur reynslu og góða tengingu úr sjávarútvegi en hann hefur starfað hjá útflutningsdeild Eimskips frá árinu 2021.

Hann er fæddur 1998 og er með BSc í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Björn Einarsson, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip, segir það gaman að sjá fólk þróast í starfi en Hjörvar hefur að hans sögn vaxið mikið í starfi síðustu misseri.

„Útflutningur frá Íslandi er ein af lykilstoðum samfélagsins og þar sem sjávarútvegurinn er lykilbreyta. Hlutverk Hjörvars verður að leiða reynslumikinn hóp starfsfólks og halda áfram að þróa og viðhalda okkar öflugu þjónustu og flutningalausnum við viðskiptavini félagsins,“ segir Björn.