Soffía Theódóra Tryggvadóttir hefur verið ráðin fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures en hún býr yfir reynslu af alþjóðlegum störfum í nýsköpun, upplýsingatækni og fjármálum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brunni.

Hjá Brunni mun Soffía Theódóra sinna greiningu og öflun fjárfestingatækifæra, byggja upp tengslanet við erlenda vísifjárfesta og starfa með stjórnendum og frumkvöðlum að lokinni fjárfestingu.

Soffía Theódóra kemur til Brunns frá bandaríska Fortune 500 fyrirtækinu NetApp. Þar leiddi hún fyrst markaðssetningu félagsins á skýjalausnum þess, og bar síðar ábyrgð á uppbyggingu vörumerkisins á heimsvísu. Hún stofnaði einnig tímaritið Nordic Style Magazine árið 2012, sem er dreift víða bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.

Soffía Theódóra er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá sama skóla.

Brunnur Ventures er ábyrgðaraðili tveggja vísisjóða, Brunns vaxtarsjóðs I og II, sem reknir eru í samstarfi við Landsbréf. Sjóðirnir eru samtals 13,3 milljarðar króna og að mestu fjármagnaðir af lífeyrissjóðum. Frá 2015 hafa sjóðirnir fjárfest í 20 íslenskum sprotafyrirtækjum sem búa yfir tækni og þekkingu sem hægt er að selja á erlendum mörkuðum.

Árni Blöndal, fjárfestingastjóri og annar stofnenda Brunns Ventures:

„Það er mikill fengur að fá Soffíu Theódóru í teymið en hún býr yfir mjög verðmætri reynslu, bæði sem stjórnandi í skráðu tæknifyrirtæki á Nasdaq og sem stofnandi og stjórnandi í sprotafyrirtæki. Við erum einnig virkilega stolt af því að með komu Soffíu Theódóru í teymið hafa allir fjárfestingastjórar Brunns reynslu sem frumkvöðlar, sem er mjög verðmætt.“

Soffía Theódóra Tryggvadóttir:

„Ég þekki vel til Brunns þar sem ég hef setið í stjórn Brunns vaxtasjóðs II frá stofnun og er ótrúlega spennt yfir því að ganga til liðs við fyrirtækið sem fjárfestingastjóri. Ég hlakka til að nýta reynslu mína úr alþjóðlegu umhverfi til þess að hjálpa íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum að ná árangri erlendis.“