Í júlí voru skráð 103 ný einkahlutafélög samanborið við 208 einkahlutafélög í júlí 2009. Það jafngildir rúmlega 50% fækkun á milli ára.

Einnig voru skráð 27 samlagsfélög í júní. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 1002 á fyrstu sjö mánuðum ársins. Það er fækkun um tæplega 35% frá sama tímabili í fyrra þegar 1530 ný einkahlutafélög voru skráð.

Eftir flokkum voru flest einkahlutafelög skráð í heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.

Flest gjaldþrot í byggingastarfsemi

Í júlí voru 39 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 35 fyrirtæki í fyrra. Flest fyrirtækjanna voru í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð. Á fyrstu sjö mánuðum ársins hefur gjaldþrotum fjölgað um tæplega 9% samanborið við sama tímabil í fyrra. Þá voru þau 543 en eru nú 591.