Skráð atvinnuleysi í júní var 1,1% og eykst úr 1% í maí sl. Atvinnuleysið var 1% í júní í fyrra.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Að meðaltali voru 1.842 atvinnulausir í júní og fjölgar atvinnulausum um 103 eða um 6% frá maí.   Atvinnuleysi jókst á höfuðborgarsvæðinu um 18% en minnkaði á landsbyggðinni um 7%.

Þá kemur fram að atvinnuleysi kvenna jókst meira en meðal karla á höfuðborgarsvæðinu en minnkaði meðal kvenna á landsbyggðinni, svo og meðal karla þar.

Atvinnuleysi þeirra sem hafa verið á skrá í allt að 3 mánuði jókst milli mánaða, en alls höfðu 1.183 verið án vinnu í 3 mánuði í júní 2008 en 1.022 í maí.

Hins vegar fækkaði þeim sem hafa verið á skrá lengur en 6 mánuði og voru 477 án vinnu í yfir 6 mánuði í júnílok en 506 í maílok.

Vísbendingar um atvinnuleysið í júlí

Á vef stofnunarinnar kemur fram að oft minnkar atvinnuleysið milli júní og júlí.

Í fyrra minnkaði atvinnuleysið um 3% milli þessara mánaða og fór úr 1% í júní og í 0,9% í júlí.

Atvinnulausum í lok júní fjölgaði frá lokum maí um 87 og um 295 frá júní 2007. Líklegt er að atvinnuleysið muni aukast í júlí 2008 og verða á bilinu 1%-1,3%.