Hagnaður Kaupþings Búnaðarbanka hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2004 samkvæmt óendurskoðuðu innanhússuppgjöri nemur 11.705 milljónum króna eftir skatta, þar af eru 1.477 milljónir vegna FIH, eftir að tekið hefur verið tillit til afskriftar á viðskiptavild í móðurfélagi. Hagnaður Kaupþings Búnaðarbanka hf. á þriðja ársfjórðungi 2004 nam 5.547 milljónum króna. Heildareignir Kaupþings Búnaðarbanka hf. þann 30. september námu 1.522 milljörðum króna, samanborið við 559 um áramót.

Eigið fé þann 30. september nam um 96 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 32,5%.

Kaup Kaupþings Búnaðarbanka hf. á danska bankanum FIH miðast við 1. júlí 2004 og því er rekstur FIH inni í tölum Kaupþings Búnaðarbanka hf. fyrir þriðja ársfjórðung.