Í nóvember flutti Icelandair um 161.024 farþega í milliflugi en það er 12% fleiri en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum flutningatölum Icelandair Group.

Þá kemur fram að framboðsaukning á milli ára nam 10% og sætanýting var 76,9% samanborið við 74,0% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 21,9%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 21 þúsund í nóvember og fækkaði um 1% á milli ára. Sætanýting nam 72,5% og hækkaði um 1,1 prósentustig frá síðasta ári. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 20% á milli ára. Fraktflutningar stóðu í stað á milli ára. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 71,0% samanborið við 65,5% í nóvember í fyrra.