YouTube stjörnurnar eru kvikmyndastjörnur nútímans, en þær njóta gríðarlegra vinsælda með myndböndum sínum á þessum vel sótta vef. Sérstaklega eru myndböndin vinsæl meðal yngri kynslóðarinnar, en milljónir manna eru áskrifendur af þekktustu YouTube síðunum.

Vinsælastur þeirra allra er Felix Arvid Ulf Kjelberg, Svíi sem betur er þekktur sem PewDiePie. Hann birtir myndbönd af sér að spila tölvuleiki þar sem hann lýsir því sem er að gerast. Samtals hefur verið horft á myndbönd hans í meira en 10 milljarða skipta og er hann með tæplega 40 milljónir áskrifenda.

Business Insider birti lista yfir 15 vinsælustu YouTube síðurnar og eru þær af ýmsum toga. Meðal annars eru þar dömur sem gefa fegurðarráð, rappkeppnir á milli þekktra einstaklinga úr mannkynssögunni, og margt fleira. Stofnendur þessara YouTube síðna hafa margir hverjir þénað milljónir dollara og eru ekki síður frægir en kvikmyndastjörnur og söngvarar meðal yngri kynslóðarinnar.

Smelltu hér til að sjá listann í heild sinni og umfjöllun um hverja síðu.