Gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum námu 155 milljörðum króna á árinu 2009, að teknu tilliti til umsvifa íslenskra ferða- og flugþjónustufyrirtækja vegna starfsemi utan Íslands. Ferðaneysla erlendra ferðamanna innanlands var 112 milljarðar króna en tekjur vegna ferðamanna utan Íslands eru 43 milljarðar króna.

Hagstofan birti í dag ferðaþjónustureikninga í annað sinn. „Ferðaþjónustureikningar hafa það hlutverk að meta efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu fyrir þjóðarbúskapinn. Helstu hagtölur í ferðaþjónustu byggjast á niðurstöðum um útgjöld eða kaup erlendra ferðamanna á Íslandi, útgjöldum Íslendinga á ferð um eigið land og útgjöldum Íslendinga á ferðalagi erlendis,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Kemur fram að hlutur ferðaþjónustu í vergri landsframleiðslu var 4,6% á árinu 2008. Heildarumsvif fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2008 námu ríflega 209 milljörðum króna, sem svarar um 14% af vergri landsframleiðslu.

Heildarferðaneysla innanlands á árinu 2008 var rúmlega 171 milljarður króna, eða um 11,5% af vergri landsframleiðslu. Áætlað er að ríflega 9.200 manns hafi starfað við ferðaþjónustu á árinu 2008 eða um 5,1% af störfum alls.

Þá skiptist ferðaneysla innanlands á árinu 2008 þannig að kaup erlendra ferðamanna voru 93,5 milljarðar, ferðaneysla heimilanna um 67,5 milljarðar króna og kaup fyrirtækja og opinberra aðilar um 9,5 milljarðar króna.

Frétt Hagstofunnar .